Senjora Kristín
24.04.2007 00:53:02 / cutess

Flutt

Velkomin á nýja síðu ;) 

 

www.kristingrims.blog.is

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 21:57:27 / cutess

Breaking news

Nýjustu fréttir:

Kristín Grímsdóttir er á lífi!! Ótrúlegt en satt :haha:

Það er ágætlega mikið að gera hjá mér í skólanum, er á síðustu önninni...er búin að koma mér í útskriftarnefnd, sé um að "peppa" alla upp nokkurnveginn ;)

Á mánudaginn fékk FÁ grænfánann sem er viðurkenning fyrir bætta umhverfisstjórnun í skólanum, fyrsti framhaldsskólinn á landinu sem fær hann 8) ótrúlega nett..!! Ég var þar að gefa fólki lífrænt gos frá Yggdrasil, mjög gott og hollt :D

Allavega GO MAGNI og allir að kjósa:!:  Ég er farin að glápá á kassótta tækið inní stofu :haha:

Love love

Kristín


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 17:22:22 / cutess

Spánn og aftur Spánn

Jæja er ekki mál að blogga smá...

Nenni ekki að gera rosa sögu þannig að ég ætla bara að punkta niður það helsta sem búið er að ske hjá mér...

  • Fór til Madrid að taka á móti Njáli, hann vissi það ekki ;)
  • Taskan hans týndist..kom daginn áður en hann fór heim
  • Hann hitti vini mína úr háskólanum, fórum út með þeim...brutum skó og dóum úr kulda, hehe..
  • Allir vinir mínir eru farnir heim :(
  • Ég og Njáll fórum til Santander yfir helgina, ótrúlega gaman..fundum Tívolí:!: stuð stuð stuð 
  • Fórum svo til Bilbao(Norður Spánn) í eina nótt
  • Komum heim til Burgos og Njáll fór heim til Íslands í gær :cry:
  • Takk ástin mín fyrir æðislega ferð *koss* Elska þig ;)

Það sem er á döfinni...

  • Vinna á morgun og föstudaginn(passa krakkana)
  • Laugard. förum við til Briviesca á "Dag Barnanna" þar sem krakkarnir verða í búning..Pétur Pan og Tinkerbell ;) sætast!!
  • Á sunnudaginn förum við út að borða, með 3 öðrum fjölskyldum..kveðjumáltíð fyrir mig, Evu og Michelle (Au pair gellurnar í Villagonzalo)
  • Á mánud og þriðjud verð ég að passa krakkana
  • Á miðvikudaginn förum við fjölskyldan til Benidorm í frí :haha: Strönd og stuð ;)
  • Vikuna eftir það..Miðvikud 23.ágúst flýg ég svo heim til Íslands og byrja í FÁ

Nóg að gera..mikið gaman, mikið fjör ;)

Kristín


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 12:46:22 / cutess

Cumpleanos feliz ;)

Sætasta og bestasta frænka mín á afmæli í dag, ég er auðvitað að tala um hana Estheri Bergsdóttur. Hún er hvorki meira né minna en 21 árs í dag :D

Image hosting by TinyPic

Hér er hún með litla ungann sinn ;)

 

Til hamingju Esther, elska þig ótrúlega mikið..hlakka til að hitta ykkur þegar ég kem heim ;)

Kristín frænka

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 17:48:52 / cutess

Það rýkur úr hausnum á mér...

Mig langaði bara að koma því á framfæri að ég er
svo ótrúlega reið útí þetta helvítis Landsflug:!:
Ef ég væri á Íslandi þá væri ég búin að fara og
bitchslappa þessi helvítis fífl!! 
Er það ekki brot á samningnum ef vélin er ekki
staðsett í Eyjum...mér er skítsama þó hún hafi náð á
réttum tíma til Eyja (sem er ekki í öllum tilfellum)
HÚN Á AÐ VERA Í EYJUM!!
Þessir skíthælar eru bara ekki að ná þessu!!!   :klikk:
Vil benda á snilldarsvar Ritsjórn Frétta
á www.eyjafrettir.is 
Vestmannaeyingar..látum ekki vaða svona yfir okkur!!
Þetta er spurning um líf og dauða...
....gæti verið þitt!!
Kristín "brjálaða"

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 14:01:01 / cutess

Endalaus afmæli

Í dag á vinkona mín hún Michelle afmæli. Hún er frá Kanada og vinnur hérna á Spáni eins og ég sem Au pair ;) Hún er 21 árs í dag og ætlum við í því tilefni að skella okkur á djammið i kvöld (það er reyndar gert öll kvöld, en fínt að hafa ástæðu endrum og sinnum!)

Image hosting by TinyPic

Þarna er sæta hún á einu djamminu

Happy birthday Michelle..Love'ya girl 8)

                   Kristín


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 09:45:19 / cutess

Afmælisbarn dagsins

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Halldór, hann á afmæli í dag!! :D

Já minn fagri frændi hann Halldór Ingi er tvítugur í dag og vil ég óska honum innilega til hamingju með það.

Ég treysti því að Esther frænka kyssi hann frá mér, þríeykið loksins öll komin með ríkisaldur :haha:

Image hosting by TinyPic

Eina myndin sem ég á af honum í tölvunni...ansi skrautlegur þarna ;)

Til hamingju Halldór minn, mér þykir rosalega vænt um þig!!

*Knús og kossar frá Spáni*´

Kristín


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 09:19:26 / cutess

Madrid

Ég fór til Madrid um helgina með 3 krökkum úr spænskutímunum og það var fáránlega gaman :D Það var ég, April, Nick og Austin. 

 Ótrúlega heitt, 36°C Við hittumst á rútustöðinni í Burgos klukkan 4 og rútan okkar fór 4:30 og var 2 og hálfann tíma á leiðinni, það var tekin góð Siesta á meðan sumir horfðu á Bandaríska vestra mynd á spænsku!! :haha: Svo tókum við Metro að hótelinu okkar sem var á ótrúlega góðum stað í miðbænum. Við fórum uppá hótelherbergi og fengum okkur nokkra bjóra áður en haldið var út á lífið. Við vorum að leita af diskóteki eða bar til að fara á og þá kom einhver kall og fór að reyna við April og hann reddaði okkur frítt inná Salsaklúbb og þar dönsuðum við af okkur lappirnar. Aðallega April því kallinn vildi alltaf dansa við hana, og ég og Austin vorum eins og algjör fífl þarna að reyna að dansa:!:

Svo á laugardeginum var sofið aðeins meira en ætlunin var þannig að það var ekki mikið skoðað þann daginn, vöknuðum um 12 leytið og fengum okkur að borða og fórum aftur að sofa til 5...hehe!! Svo kíktum við aftur út á laugardagskvöldinu og þar var annar gaur að reyna við April, hehe! Hann reddaði okkur fari í samlokusjoppu því við vorum að deyja úr hungri!! April reddar málunum ;)

Sunnudagurinn var mjög fínn, vöknuðum snemma og ég og April fórum og kíktum á flóamarkað þar sem ég keypti buxur og kjóla ;) Strákarnir fóru á meðan á Prado safnið sem kom í ljós að var frítt!! Heppnir!!

Síðan byrjar bíómyndin...við áttum rútu klukkan 18 og við fengum okkur að borða klukkan 16, maturinn var mjög lengi á leiðinni þannig að við þurftum að drífa okkur heim á hótelið, vorum komin þangað um 17:30 og báðum kallinn í lobbyinu að hringja á leigubíl, sem hann gerði en hann var svo lengi á leiðinni að klukkan 17:40 hlupum við útá götu að ná í leigubíl þar. Það tókst einhvernveginn (takk fyrir það Nick) og við báðum hann að taka okkur á rútustöðina, HRATT.

Klukkan var 18:02 þegar hann kom fyrir utan rútustöðina og ég henti í hann pening og við stukkum út, ég var með flugfreyjutösku sem var alltaf að hvolfa og við hlupum og hlupum og við rétt náðum og þá meina ég RÉTT NÁÐUM!! Rútan var lokuð og hann var að fara að bakka út þegar við komum hlaupandi "Stop, stop" Sem betur fer var þetta fínn bílstjóri og hann hló bara að okkur. Við áttum miða aftast í rútunni þannig að við þurftum að labba framhjá öllu "perdón, lo siento!!" Svo settumst við niður og horfðum á hvort annað og bara sprungum úr hlátri...þetta var magnað og OMG hvað ég var þreytt og sveitt!! haha!!!´

Svo í rútunni horfðum við á The Core á spænsku! Algjör snilld :D

Image hosting by TinyPic

Þarna erum við öll á Salsaklúbbnum. Ég, Austin, Nick og April.

Svo er mamma að koma til mín í heimsókn á laugardaginn og verður í viku ;) Það verður bara gaman að sýna henni allt hérna!!

Jæja þetta er komið fínt!!

Kristín


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 13:27:04 / cutess

Hann á afmæli í dag..

..hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann pabbi,

hann á afmæli í dag!!

Image hosting by TinyPic

Alltaf jafn myndarlegur :D

Til hamingju með afmælið pabbi minn, vonandi verður dagurinn góður:!:

Ég elska þig

Kristín


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 13:25:02 / cutess

Rural Tourism

Jæja, ég er að fara á Norður-Spán um helgina með fjölskyldunni. Þau eru búin að leigja hús þar sem við verðum í, þetta kallast víst "Rural tourism" verðum í sveitinni en samt nálægt strönd 8) Stuð, Stuð, Stuð!!

Hér eru myndir af húsinu sem við verðum í...

Annars er bara allt gott að frétta héðan...er að byrja í spænskunámi á mánudaginn...verð í 2 vikur ;) Hlakka mjög svo til þess!!

Allavega..ég verð að halda áfram að pakka niður.

Kristín

Ps. Njáll ég sakna þín ótrúlega mikið!! *kossar*


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 20:24:54 / cutess

Spánarblogg

Já góðann og blessaðan daginn...mig langar að segja ykkur hvað hefur verið að ske síðustu daga hérna hjá mér á Spáni.

Á laugardaginn fór ég með fjölskyldunni í bæ sem heitir Briviesca, þau ólust þar upp! Við fórum í mat til mömmu Félix og það var bara fínt (ennþá ekki alveg að fíla mig í matnum hérna) en við tókum líka góða göngu um bæinn og þar komst ég að því að í bæ með 6000 manns eru u.þ.b. 63 barir 8| Það búa 4500 í Eyjum og það eru 3 eða 4 barir!! Hvað er fólkið að drekka mikið þarna :!::!::!: Hehe, þetta minnir mig á...Njáll til þín: 16 MILLJÓNIR, sjáðu þessar tvær manneskjur og margfaldaðu með 8 milljónum :haha: hahaha... Sorry...smá einkahúmor í gangi!!

Allavega, svo um kvöldið vildu Eva og Michelle endilega fá mig út. Þannig að ég fór með þeim á La Peña og á barinn og við fengum okkur nokkra bjóra og eitt eða tvö skot ;) Svo var ég að reyna að muna nöfnin á öllum krökkunum en það er ekki sjens...þau heita öll svo rosalega spænskum nöfnum og hafa öll eitt eða tvö nicknames!! Erfitt!!! Man ekki einu sinni eitt nafn núna, eða jú Guilermo eða eikkað sollis :| Man samt ekkert hver það er...hehe

Svo var Sunnudagurinn bara leti og chill 8) Og þá erum við komin að deginum í dag...fór í sólbað og er komin með feiknafar :D Þau eru byrjuð að kalla mig Brown Kristín...pabbi þú skalt passa þig, ég gæti tekið yfir sem Miss Brown ;) Ég fór svo með Félix og krökkunum til læknis því Marina litla er eikkað slæm í eyrunum og fékk meðal við því. En það var svo ótrúlega heitt í dag, örugglega hátt í 35 gráður:!:

Í kvöld (eða bara akkurat núna klukkan átta) byrja tónleikar með Roger Waters í Egilshöll og Njáll verður þar, mínir klikkuðu en alltaf jafnsvölu foreldrar gáfu honum miða fyrir að hjálpa þeim að parketleggja og hjálpa þeim í bústaðnum :haha: Algjör snilld!! Vildi að ég gæti farið með honum! Að sjá Roger Waters á tónleikum....Draumur í dós!! Þeir sem vita það ekki þá var Roger Waters forsprakki Pink Floyd!!

Image hosting by TinyPic

Mín í Briviesca

Image hosting by TinyPic

Senjoritur Kristín og Marina

Ég er meira að segja búin að heilaþvo krakkana...kíkið á það -------> http://video.tinypic.com/player.php?v=148hdur

En þetta er orðið alltof langt...ég blogga örugglega meira á morgunn eða hinn..því við erum að fara burt um helgina...meira um það seinna ;)

Kristín


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 19:45:09 / cutess

Hiti!!!!!

OMG það er búið að vera svo heitt hérna síðustu þrjá daga að það er ekki fyndið 8) Ég var bara á bikiní útí garði í dag að fíflast með krökkunum í "sundlauginni" Er komin með nokkuð góðann lit :D Það  voru víst 35 gráður hérna og logn....aðeins of mikið!!

Annars er ekkert mikið nýtt að frétta héðan...sama rútínan dag eftir dag...Þrek, rúta, siesta, leika við krakkana, baða krakkana, borða og sofa! Virðist ekkert mjög spes en ég er alltaf að sjá eitthvað nýtt á hverjum degi og læra ný orð :haha: Er samt með soldið mikla heimþrá (eða Njálsþrá frekar)

Félix og Irene eru búin að vera að spurja mig hvert ég vilji fara í 3 daga ferðalag sem við förum í í Júní...La playa por favor er svarið! Förum líklega á einhvern stað á norður Spáni, nálægt strönd!! Og svo förum við líka í lok ágúst, rétt áður en ég kem heim, til Alicante og leigjum villu þar...nálægt strönd!! hehe ;) Stuð stuð stuð

Ég er farin að sofa aka. glápa á Friends í tölvunni ;)

Kristín

ps. Vil óska henni Kristjönu innilega til hamingju með litlu dúlluna sína, hún eignaðist litla stelpu í gær ;) *kossar og knús*


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 09:23:07 / cutess

Dagur harðsperra

Ég sit hérna inní stofu í Villagonzalo að horfa á spænska teiknimyndastöð :!: 8| hehehe... Í gær horfðum ég, Félix og Irene (mamman og pabbinn) á "Ég lifi" sem ég gaf þeim þegar ég kom, þau voru ekkert smá hissa að sjá hvað eldgosið var nálægt húsunum!!

Í gær fórum við Eva í ræktina eins og vanalega sem er ekki frásögufærandi...við fórum að hjóla í 20 mín áður en stepp classinn byrjaði (fyrsti tíminn minn) og OMG hvað þetta var erfitt, þetta var meira svona "höfum sporin ótrúlega erfið" frekar en "æfum okkur" allavega þá voru ég og Eva þarna eins og bjánar!! Það voru svona 8 í tímanum og við vorum fjórar sem gátum varla skrefin..ég sem var svo góð í þessu heima í Sporthúsinu!! Svo eftir langann kukkutíma þá komst ég að því að þær gera alltaf sömu sporin í hverjum einasta tíma :!: Þannig að þetta var ekki bara ég sem gat ekkert, hinar voru bara búnar að æfa þetta!!! Léttir :haha:                                            Allavega í dag er dagur harðsperra :S

Ég er farin út að leika með krökkunum...heyrumst síðar!!

Kristín

Njáll: ég sakna þín svo mikið:!: Elska þig ástin mín *kossar*


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 13:16:54 / cutess

Kolkrabbar og flugfreyjukörfur

Halló fólk, það er mikið að gera hjá mér í Burgos.

Í gær fór ég með Félix og Irene inní Burgos og við fórum í Alcampo, mall-ið ;) Þar keyptum við inniskó á mig og fína skó á Marinu, stelpuna þeirra!! Svo fórum við niður og keyptum í matinn...við fórum hjá fiskborðinu og þar var margt mjööög skrítið, huge rækjur, allrahanda skeljar og kolkrabbar...soðnir og ósoðnir 8| Veit ekki hvort var ógirnilegra :| hehe...

Svo í morgun fór ég aftur með Evu til Burgos og við fórum í ræktina og tókum allsvakalega á 8) töffarar!! Svo tókum við rútuna til baka til Villagonzalo :haha: Núna er ég bara að bíða eftir að allir komi heim, kíki með krakkana í fótbolta eða eikkað:!:

Hasta Luego

Kristín

ps. allir að commenta svo ég viti hverjir eru að kíkja hérna :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 09:57:55 / cutess

Viva España

Mín er komin til Spánar 8) Lenti í gaerkveldi um klukkan 9 og tá voru tau bídandi eftir mér :lol: Tetta fólk er bara frábaert...ekkert smá ánaegd med tetta!! Ég er ein heima núna tví krakkarnir eru í skólanum og tau eru í vinnu! Í gaerkveldi kom líka hún Eva sem er Au pair hérna rétt hjá og -au spjolludu heilmikid á Spaensku og ég skildi bara fullt :D vííí...tad vard samt soldid fyndid tegar tau reyndu ad bera fram Njáll  :haha: Algjor snilld!!!

Húsid teirra er líka gedveikt flott, ég er á loftinu í herbergi...geggjad flott svona undir súd :haha:

En ég tarf ad halda áfram ad pakka upp!! hehe...

Njáll ég sakna tín ótrúlega mikid *koss*

Señora Kristín


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5